Vefsíða Reykjavíkurborgar

Styttu þér leið. Þjónusta. Stjórnkerfi. Rafræn Reykjavík. Hverfið mitt.

Leit

Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Betri Reykjavík athyglisverðasti og frumlegasti vefurinn.

Betri Reykjavík hlaut tvenn verðlaun á Íslensku vefverðlaununum 2012 | 03.02.2012

Betri Reykjavík var valinn frumlegasti vefurinn og athyglisverðasti vefurinn á Íslensku vefverðlaununum sem Samtök vefiðnaðarins, SVEF, standa að. Verðlaunin eru uppskeruhátíð með það að markmiði að verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða.

Lögreglan hefur átt gott samstarf við Dagbjart.

Á grænu ljósi í 41 ár | 03.02.2012

Dagbjartur Sigurbrandsson hefur stýrt umferðarljósunum í Reykjavík i 41 ár og á þeim tíma hafa orðið gríðarlegar breytingar á umferðinni og tækninni sem er á bak við umferðarljós og stýringu þeirra. Á næstunni lætur Dagbjartur af störfum eftir farsælan og ánægjulegan tíma og af því tilefni var honum haldið kveðjuhóf af starfsmönnum á Framkvæmda- og eignasviði. Hópur lögreglumanna sem átt hefur mikil samskipti við Dagbjart mætti einnig til að kveðja góðan félaga og þakka fyrir samstarfið.

Ráðhús Reykjavíkur

Reykjavíkurborg leggur til breytingu á fasteignalögum um hesthús | 02.02.2012

Reykjavíkurborg óskar eftir því að alþingi breyti lögum um álagningu fasteignaskatta á hesthús þannig að ekki þurfi að stórhækka álagningu á þá sem eiga hesthús þar sem fram fer frístundastarf.

Mikill áhugi þátttakenda á tölvunámskeiðunum.

Vinsæl tölvunámskeið hafin að nýju | 02.02.2012

Námskeið í tölvufærni aldraðra sem Reykjavíkurborg hefur staðið fyrir eru hafin að nýju. Námskeiðin sem haldin eru í 6 félagsmiðstöðvum eru ókeypis hafa reynst mjög vinsæl, aðsókn hefur verið góð og mikill áhugi. Nú bætast námskeið við á þremur nýjum stöðum.


Betri Reykjavík - samráðsvefur Reykvíkinga


Flautan - ábendingar um misferli