Námskeið fyrir starfsfólk skemmtistaða
15.07.2010
Undanfarin misseri hefur verið rætt um mikilvægi þess að halda námskeið um öryggismál fyrir dyraverði skemmtistaða borgarinnar. Fyrsta námskeiðið var haldið hjá Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkur 13. júlí en þátttakendur voru um 30 talsins.
Á námskeiðinu fluttu fulltrúar frá Lýðheilsustöð, Lögreglu, Neyðarmóttöku og Mannréttindaskrifstofu erindi en markmiðið með námskeiðinu var að samhæfa vinnubrögð dyravarða í öryggismálum. Að loknum framsöguerindum fóru fram gagnlegar umræður um nauðsyn þess að skerpa á öryggismálum á skemmtistöðum þar sem þátttakendur og framsögumenn skiptust á skoðunum og hugmyndum. Fljótlega verður haldið sambærilegt námskeið á ný en þátttaka í því er ókeypis og opin öllum starfsmönnum skemmtistaða borgarinnar. Verkefnisstjóri námskeiðsins fyrir hönd Mannréttindaskrifstofu er Halldór N. Lárusson en tilkynna má þátttöku og fá frekari upplýsingar með því að senda tölvupóst á netfangið halldor.nikulas.larusson@reykjavik.is eða með því að hringja í síma 411 1154.