Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Minnkandi kynbundin launamunur hjá Reykjavíkurborg

09.09.2010

Borgarstjórn samþykkti árið 2008 að gerð yrði óháð úttekt á kynbundnum launamun hjá starfsmönnum borgarinnar og var skýrsla með niðurstöðum úttektarinnar kynnt í Tjarnasal Ráðhúss Reykjavíkur á dögunum.  Fram kom að konur eru að meðaltali með 98% af dagvinnulaunum karla meðal starfsfólks í fullu starfi og með 87% af heildarlaunum þeirra áður en leiðrétt hefur verið fyrir starfsaldri, aldri og starfaflokkun. Þegar leiðrétt hefur verið fyrir þessa þætti eru karlar með 5,2% hærri dagvinnulaun og 8,1 % hærri heildarlaun en þá hefur í útreikningum vegna heildarlauna að auki verið leiðrétt fyrir akstur, vaktir og yfirvinnu.

Meðal starfsfólks í fullu starfi hafa konur 37% af akstursgreiðslum karla og 53% af yfirvinnugreiðslum karla.

Næstu skref eru þau að stofnaður hefur verið vinnuhópur undir forystu Sóleyjar Tómasdóttur sem ætlað er að vinna á kynbundnum launamun en í úttektinni eru m.a. lagðar fram þær tillögur að rýnt verði akstursgreiðslur og sjá til þess að konur og karlar í sambærilegum störfum hjá Reykjavíkurborg sem krefjast aksturs fái sömu greiðslur.  Þá verði rýnt í fasta yfirvinnu kynjanna og skoðað hvort málefnaleg rök séu fyrir að konur hafi aðeins 46 prósent af fastri yfirvinnu karla. Greint verði hvaða hópar það eru sem eigi þess kost að fá breytilega yfirvinnu og athuga hvort „aðgangur að henni sé kynbundinn,“ eins og segir í úttektinni. Loks er lagt til að gerð verði ný úttekt á launamun kynjanna eftir að rýni og leiðréttingar í kjölfar hennar hafa farið fram.

Úttektina unnu Anna Borgþórsdóttir Olsen á mannauðsskrifstofu Reykjavíkurborgar, Halldóra Gunnarsdóttir á mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar og Ragna Benedikta Garðarsdóttur sérfræðingur á Félagsvísindastofnun, f.h. RIKK

Skýrsluna má nálgast í rafrænu formi í dálknum hægra megin á forsíðu vefs mannréttindaskrifstofu eða með því að smella hér.