Vel heppnaður hugarflugsfundur um þróun þjónustu við fatlað fólk í Reykjavík
08.06.2010
Upplestur á frétt 
Mánudaginn 7. júní 2010 var haldinn hugarflugsfundur um þróun þjónustu við fatlað fólk í Reykjavík á næstu árum. Þátttakendur voru kallaðir til víðs vegar að en á fundinum voru fulltrúar frá þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar, Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík, Barnavernd Reykjavíkur, Heimaþjónustu Reykjavíkur, Menntasviði Reykjavíkurborgar, Íþrótta-og tómstundasviði, Framkvæmdasviði og Umhverfis -og samgöngusviði auk Velferðarsviðs. Mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar, Anna Kristinsdóttir, var einnig á fundinum sem og Rannveig Traustadóttir, prófessor í fötlunarfræðum og Óskar Páll Óskarsson, lögfræðingur. Síðast en ekki síst tóku fulltrúar hagsmunasamtaka virkan þátt á fundinum.
Stella K. Víðisdóttir, sviðsstjóri Velferðarsviðs opnaði fundinn. Hún kynnti stöðu yfirfærslunnar á landsvísu og hvernig verkefninu er stýrt sameiginlega af fulltrúum ríkis og sveitarfélaga. Verkefnisstjórn er starfandi skipuð fulltrúum beggja aðila og á Stella sæti í henni. Reykjavíkurborg hefur skipað stýrihóp kjörinna fulltrúa og María Rúnarsdóttir hefur verið ráðin verkefnisstjóri yfirfærslunnar en hún er staðsett á skrifstofu Velferðarsviðs. Stefnt er að því að yfirfærslan geti átt sér stað þann 1. janúar 2010 og hefur Velferðarsvið mikinn metnað til að vanda til yfirfærslunnar. Þjónusta við fatlað fólk kemur inn á mörg svið samfélagsins og því var öllum sviðum borgarinnar boðin þátttaka á þessum hugarflugsfundi. Yfirfærsla þjónustu við fatlað fólk frá ríki til borgar er mjög stórt verkefni og mikil vinna framundan. Stella sagði að það verði ekki allt tilbúið um áramótin og vegferðin hefjist þá fyrst þegar yfirfærslan kemur til framkvæmda. Stella lauk máli sínu á mikilvægi þess að nýta tækifærið sem skapast af yfirfærslunni til þess að þróa þjónustu við fatlað fólk í Reykjavík og mynda heildstætt þjónustukerfi. Velferðarráð Reykjavíkurborgar þurfi að móta sér stefnu í málefnum fatlaðra til næstu ára og er hugarflugsfundurinn mikilvægur þáttur í þeirri vinnu.
Áður en hugarflugið hófst voru stutt innlegg í umræðuna. Fyrstur tók til máls Óskar Páll Óskarsson lögfræðingur sem starfað hefur í félags-og tryggingamálaráðuneyti síðustu ár og var meðal annars í nefnd um fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Óskar kynnti lagalegan ramma um málefni fatlaðra og helstu lagabreytingar sem eru í farvatninu. Bar þar hæst breytingar sem þarf að gera vegna fullgildingar samnings Sameinuðu þjóðanna og notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar.
Glærur Óskar Páls Óskarssonar lögfræðings má sjá hér>>> 
Næst tók til máls Gerður A. Árnadóttir formaður Þroskahjálpar. Hún lagði áherslu á að yfirfærsla þjónustu við fatlað fólk feli í sér tækifæri til að þróa þjónustuna og gera hana notendamiðaðri þannig að þjónustan taki mið af þörfum fólks en sé ekki bundin við hóplausnir eins og raunin er svo oft. Gerður telur mikilvægasta verkefnið framundan að vinna að góðum viðhorfum, tryggja mannréttindi fatlaðs fólks og virða þá sem fá þjónustu því þeir eigi rétt á góðu lífi en eigi ekki að þurfa að sætta sig við að fá þjónustu byggða á aumingjagæsku sem er alltof algengt að mati Gerðar. Það vilji enginn fá þjónustu á þessum forsendum og því sé það meðal brýnustu verkefnanna framundan að breyta viðhorfum í þjónustu við fatlað fólk.
Glærur Gerðar A. Árnadóttur má sjá hér >>> 
Guðmundur Magnússon, formaður Öryrkabandalags Íslands tók undir með Gerði varðandi áherslu á notendastýrða persónulega aðstoð. Hann lagði einnig áherslu á skilgreiningu hugtaka sem notuð eru þegar rætt er um þjónustu við fatlað fólk. Til dæmis þurfi að gera greinarmun á aðstoð og þjónustu. Þjónusta er veitt af þjónustuaðila og notandinn þiggur þjónustu á meðan aðstoð er sú aðstoð sem fötluð manneskja fær frá annarri manneskju til þess að geta tekið virkan þátt í samfélaginu. Einnig sé mikilvægt að gera greinarmun á notendastýrðri aðstoð og einstaklingsmiðaðri þar sem notendastýrð aðstoð feli í sér að notandinn stjórni sjálfur alfarið aðstoðinni, hvenær, hvernig og á hvaða tíma hún er veitt en einstaklingsmiðuð aðstoð tekur mið af þörfum notandans en hann stjórnar henni ekki.
Síðust tók til máls Rannveig Traustadóttir, prófessor og forstöðumaður rannsóknaseturs í fötlunarfræðum. Rannveig sagði að yfirfærsla málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga skapi söguleg tímamót í þjónustu við fatlað fólk á Íslandi og væri því einstakt tækifæri til að þróa þjónustu við fatlað fólk. Rannveig lagði áherslu á að nú þyrfti að koma til nýr skilningur á fötlun, ný hugmyndafræði og síðast en ekki síst þyrfti að taka mið af nýjum mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Hugmyndafræðin um sjálfstætt líf sem þróuð er af fötluðu fólki hefur þróast hratt og fengið vaxandi meðbyr á síðustu árum og að mati Rannveigar þarf þjónusta við fatlað fólk að taka mið af þessari breytingu á hugmyndafræði þar sem áherslan er á sjálfstætt líf fatlaðs fólks, mannréttindi og réttinn til fullrar samfélagsþátttöku til jafns við aðra þjóðfélagsþegna.
Glærur Rannveigar Traustadóttur má sjá hér >>> 
Að þessu loknu hófst hugarflugið. Fundarstjóri var María Rúnarsdóttir, verkefnisstjóri yfirfærslu málefna fatlaðra.
Hér má sjá dagskrá fundarins og upplýsingar um hugarflugsaðferðina>>> 
Hóparnir unnu mjög vel eins og sést á myndunum og umræður voru miklar. Ekki er búið að vinna úr niðurstöðum fundarins en í stuttu máli var það mat þátttakenda á hugarflugsfundinum að Reykjavíkurborg eigi að leggja áherslu á eftirtalin atriði í undirbúningi yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til borgar:
- Mannréttindi fatlaðs fólks
- Hugmyndafræði, viðhorf og virðingu
- Framúrskarandi þjónustu
- Víðtækt samráð
- Fræðslu og faglega þekkingu
- Stefnumörkun, stjórnsýslu og eftirlit
Er öllum þátttakendum þakkað kærlega fyrir frábæran dag.
Þeir sem vilja kynna sér námsleiðir og námskeið sem fötlunarfræði við Háskóla Íslands veturinn 2010-2011 er bent á að lesa þetta skjal hér>>> 