Straumi hleypt á söguleg kort
31.05.2011
Upplestur á frétt 
Söguleg og verðmæt kort úr kortasafni landupplýsinga Reykjavíkur hafa verið sett á vefinn og þannig gerð aðgengilegri, auk þess sem betur hefur verið gengið frá frumgögnunum sjálfum. „Við settum á vefinn þau kort sem við töldum vera áhugaverðust fyrir almenning,“ segir Lech Pajdak, deildarstjóri landupplýsinga Reykjavíkur.
Elsta kortið er frá 1834 og heitir ,,Reikjavik og kringumliggjandi plats", og er teiknað af Birni Gunnlaugssyni. Það er nú ásamt 19 öðrum kortum aðgengilegt á vefnum. Þau eru aðeins hluti af heildarsafninu því alls hafa um fimm þúsund kort og lóðauppdrættir verið skannaðir og gerðir aðgengilegir hjá landupplýsingum á rafrænu formi.
Frumgögnin verða áfram geymd og varðveitt hjá landupplýsingum enda þarf oft að skoða þau í lóðarannsóknum og þá þarf að vera hægt að leggja kvarða á kortið vegna nákvæmra mælinga. Kortin eru varðveitt í eldþolnum kistum og lokuðu rými.
Skoða kortasíðuna