Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

 

Framkvæmdagleði í Reykjavík

16.06.2009

Eftir að gengið var frá framkvæmdaláni til Reykjavíkurborgar hefur verið unnið að því hörðum höndum að hanna og bjóða út verkefni sem áætlað er að vinna í ár. Um liðna helgi voru byggingarframkvæmdir við leik- og grunnskóla í Úlfarsárdal boðnar út og áður höfðu jarðvegsframkvæmdir við skólann verið boðnar út og eru þær framkvæmdir þegar hafnar.

Ámundi Brynjólfsson, skrifstofustjóri mannvirkjastofu Framkvæmda- og eignasviðs, segir að mikil áhersla sé á að bjóða verk út þannig að sumarið nýtist sem best. Á næstunni  verða m.a. boðin út verkefni tengd frágangi í nýjum hverfum og ræktun. Það eru verkefni í Úlfarsárdal og Norðlingaholti, auk nokkurra smærri verkefna sem tengjast frágangi gönguleiða.

Um heildarmyndina má einnig sjá nánar í eldri frétt >>>

Í eftirfarandi töflu má sjá yfirlit yfir þau verk sem nú eru í útboði og verk sem verða boðin út á næstunni vegna nýframkvæmda:

Útboðsverk Áætluð birting auglýsingar Áætluð opnun útboðs
Leik- og grunnskóli í Úlfarsárdal   2. júlí
Ýmsar smærri endurbætur á gatnamótum, útboð I   1. júlí
Ýmsar smærri endurbætur á gatnamótum, útboð II   30. júní
Boltagerði við Árbæjarskóla   19. júní
Háskólinn í Reykjavík, gatnagerð og lagnir. 4. áf.   18. júní
Kringlumýrarbraut – Suðurlandsbraut
Endurbætur á gatnamótum
21. júní 7. júlí
Norðlingaholt, ræktun og frágangur 21. júní 7. júlí
Gönguleiðir og ræktun 2009 21. júní 8. júlí
Kringlumýrarbraut – Borgartún
Endurbætur á gatnamótum
28. júní í  júlí
Úlfarsárdalur, heimreiðar, gönguleiðir og ræktun 21. júní  8. júlí

Hjá Reykjavíkurborg er staðið að útboðum samkvæmt innkaupareglum Reykjavíkurborgar til að tryggja að allir sitji við sama borð og sér innkaupaskrifstofa borgarinnar um útboð fyrir hönd Framkvæmda- og eignasviðs.

Útboð hjá innkaupaskrifstofu >>>