Verksamningur um byggingu á nýjum leik- og grunnskóla í Úlfarsárdal
21.07.2009
Gengið hefur verið frá samningi um uppsteypu og frágang á nýjum leik- og grunnskóla í Úlfarsárdal. Verkið var boðið út í opnu útboði og bárust tilboð frá 24 verktökum. Samið var við lægstbjóðanda sem er Sérverk ehf. og er samningsupphæð 207,5 milljónir króna. Verktakinn mun hefjast handa strax í byrjun ágúst, en þá verður jarðvegsframkvæmdum lokið.
Samrekinn leik- og grunnskóli
Skólinn, sem er staðsettur við Úlfarsbraut 118 – 120, er fyrsta þjónustubygging borgarinnar í Úlfarsárdal og tekur hann til starfa í ágúst á næsta ári. Byggingin er framtíðarhúsnæði leikskóla í hverfinu, en fyrst í stað verður þar samrekinn leik- og grunnskóli fyrir 1.- 4. bekk, ásamt frístundaheimili. Húsið er hannað sem 6 deilda leikskóli á 5.350 fermetra lóð og hentar því einnig vel fyrir starfsemi yngstu bekkja grunnskóla.
Við hönnun hennar var haft í huga hve umhverfið er stór þáttur í uppeldi og menntun barna en það verður í senn öruggt, hvetjandi, verndandi og fallegt. Rýmið er sveigjanlegt á þann hátt að hægt verður að stækka það og minnka eftir þörfum. Einnig er hugsað fyrir mismunandi aldri barnanna og miðað við stærð þeirra og þarfir.
Heildarkostnaður er um 460 milljónir króna
Leikskólabyggingin er 920 m². Burðarvirki er járnbent steinsteypa. Útveggir verða einangraðir og múrhúðaðir að innan, að utan verður ýmist sjónsteypa eða múr. Áætlaður heildarkostnaður við byggingu og lóð er um 460 milljónir króna.
Verkefnisstjórn er á hendi Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar; og verkfræðihönnun er hjá Mannviti og Teiknistofunni Óðinstorgi. Arkitektar eru Arkþing ehf.