Veldu þinn stað
02.12.2009
Með nýjum lóðavef Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/lodir, er hægt að skoða framboð byggingarlóða í Reykjavík. Á undanförnum árum hefur eftirspurn eftir byggingarlóðum verið talsvert meiri en framboð og var af þeim sökum dregið úr innsendum lóðaumsóknum og umsækjendum gefinn kostur á að velja sér lóðir í þeirri röð, sem umsóknir þeirra voru dregnar út. Nú eru breyttir tíma og því gefst kostur á að sækja um tilteknar íbúðarhúsalóðir í Úlfarsárdal og við Reynisvatnsás ásamt lóðum fyrir atvinnuhúsnæði við Lambhagaveg og í Hádegismóum.
Lóðaupplýsingar á vef
Á lóðavef Reykjavíkurborgar er að finna ítarlegar upplýsingar um lóðirnar, úthlutunar- og skipulagsskilmála, verð byggingarréttarins og margt fleira. Í Úlfarsárdal og við Reynisvatnsás eru í boði lóðir fyrir einbýlishús, parhús, raðhús og fjölbýlishús. Veldu þinn stað á kortum af hverfunum og þegar draumalóðin er fundin er hægt að sækja um hana sérstaklega með því að fylla út umsóknareyðublað á lóðavef og skila því undirrituðu, ásamt tilskildum fylgigögnum, í þjónustuver Reykjavíkurborgar Borgartúni 12-14.
Fólk almennt séð jákvætt.
Hverfi í uppbyggingu eru oft í umræðunni og sitt sýnist hverjum. Í Fréttablaðinu í lok október var leitað svara við því, eins og segir í kynningu blaðsins: „Hvernig er að búa í nýju hverfi sem á að rúma tíu þúsund íbúa en tvö hundruð manns búa í núna? Dr. Gunni talaði við Kristin Stein Traustason sem býr í Úlfarsfellshverfi. Þetta er þannig séð paradís, segir hann“. Skoða grein