Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

 

Nýstárlegur skóli í Úlfarsárdal tekur til starfa í haust

11.02.2010

Borgarráð samþykkti einróma á fundi sínum í dag að stofna skóla í Úlfarsárdal sem sameinar undir einu þaki leikskóla og grunnskóla ásamt frístundastarfi fyrir börn frá eins árs aldri til tólf ára. Einn faglegur og rekstrarlegur stjórnandi verði ráðinn að skólanum, sem skipuleggur innra starf samkvæmt lögum, reglugerðum og námskrám fyrir leik- og grunnskóla og samþykktum um rekstur frístundaheimila, í samstarfi foreldra. Nýi skólinn mun mæta þörfum margra barna en í dag eru 65 börn úr hverfinu í leik- og grunnskólum í öðrum hverfum. Áhersla verður lögð á að íbúar, fullorðnir jafnt sem börn, hafi aðkomu að undirbúningi nýja skólans.

Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri sér mörg tækifæri opnast með stofnun nýja skólans í Úlfarsárdal:

„Þessi tilraun, að reka saman leikskóla, grunnskóla og frístundaheimili undir einu þaki miðar að því að auka sveigjanleika í skólastarfi og það sem er ekki síst mikilvægt; skóladagurinn verður heildstæðari hjá börnunum. Þetta fyrirkomulag eykur auk þess hagkvæmni í rekstri og mun vonandi nýtast okkur vel við að móta framtíðarskipulag í skólastarfi í Reykjavík. "

Skólinn mun taka til starfa haustið 2010 í húsnæði leikskólans í Úlfarsárdal. Þegar grunnskólahúsnæðið verður tilbúið verður það nýtt fyrir sameinaðan skóla ásamt leikskólahúsnæðinu. Frá hausti 2010 verða í skólanum nemendur frá eins árs til tíu ára og síðan bætist við einn árgangur árlega. Áherslur í starfseminni verða listir og lýðheilsa, umhverfismennt og læsi.