Áhugaverðar lóðir í grónum hverfum
07.05.2010
Reykjavíkurborg auglýsir eftir kauptilboðum í byggingarrétt fyrir íbúðarhús í grónum hverfum í Reykjavík. Um er að ræða tólf lóðir og er frestur til að skila inn kauptilboðum til 19. maí.
Við Lautarveg í Fossvogi eru fimm lóðir fyrir keðjuhús, í Blesugróf, Jöldugróf og Bleikargróf eru fimm lóðir fyrir 275 – 300 fermetra einbýlishús; við Lambasel er einbýlishúsalóð og er byggingarétturinn seldur með grunni og þá er einbýlishúsalóð við Bauganes.
Nánari upplýsingar um lóðirnar og skilmála eru á lóðavef Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar. Þar er einnig að finna sérstök tilboðseyðublöðum sem áskilið er að notuð séu. Tilboð verða að hafa borist fyrir kl. 16:15 miðvikudaginn 19. maí 2010 ásamt tilboðtryggingu að upphæð kr. 300.000,- kr. Tilboð verða síðan opnuð sama dag kl. 16:30 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.