Tilboðum tekið í 4 lóðir
05.07.2010
Í maí sl. auglýsti Reykjavíkurborg eftir kauptilboðum í byggingarrétt fyrir einbýlishús og keðjuhús á nokkrum lóðum í grónum hverfum borgarinnar. Nokkur tilboð bárust og samþykkti borgarráð þ. 1. júlí 2010 að taka tilboðum í eftirtaldar 4 lóðir:
Lautarvegur 20, 22 og 26: Kaupverð á bilinu kr. 12,5 til 14,5 millj.
Bauganes 10: Kaupverð kr. 18,5 millj.
Enn eru lausar til ráðstöfunar lóðir í grónum hverfum. Hér á lóðavefsíðunni er unnt að skoða nánar þær lóðir sem í boði eru, verð og úthlutunar- og skipulagsskilmála.
Hér má sjá útboðsskilmála og niðurstöðu útboðs í maí/júní 2010 >>>