Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

 

Lóðir verði staðgreiddar

09.05.2011

Borgarráð samþykkti á fundi sínum 5. maí sl. breytingu á reglum um úthlutun lóða og sölu byggingarréttar í Reykjavík. Breytingin felst í því, að í stað greiðslu hluta lóðagjalda með verðtryggðu veðskuldabréfi er nú gert ráð fyrir að lóðir verði staðgreiddar, en greiðslufrestur var jafnframt lengdur úr einum mánuði í 45 daga. Veitt verða veðleyfi vegna bankalána óski lóðarhafar þess.
Lóðavefsíðan verður uppfærð vegna þessara breytinga á næstu dögum.