Áfram unnið af krafti við snjóhreinsun
10.01.2012
Upplestur á frétt 
Eins og undanfarnar vikur hefur verið unnið frá því klukkan fjögur í nótt um alla borg við snjóhreinsun og hálkuvarnir gatna- og gönguleiða í samræmi við forgangsröðun í snjóhreinsun. Reglubundinn akstur snjóruðningstækja hefur verið í allan dag á stofnbrautum og á helstu umferðargötum. Illfært var í efri byggðum borgarinnar í morgun og því settar þangað stórvirkar vinnuvélar (Payloaderar) til snjóruðnings.
Áfram hefur verið unnið í húsagötum með sjö vegheflum til að ná niður hryggjum en þau tæki eru það eina sem vinnur á hörðum klakanum. Unnið er í Smáíbúðahverfinu, Vogum, Sundum, Kleppholti, Laugarnesi, Norðurmýrinni, Háaleitishverfi, Vesturbæ norðan Hringbrautar, Seláshverfi og Seljahverfi. Einnig er unnið við snjóruðning í efri byggðum með stórvirkum vinnutækjum.
Hafist var handa í nótt við að flytja á brott stærstu snjóhaugana sem myndast hafa við snjóhreinsun liðinna vikna. Byrjað var við Egilsgötu í nótt og haldið verður áfram við þessa vinnu við Barónsstíg, Langholtsveg og Leifsgötu. Ráðist er á haugana þar sem þeir eru hæstir og mest til trafala og er ráðgert að halda þessari vinnu áfram næstu daga. Og eins og undanfarna daga er unnið við snjóhreinsun og söndun á göngustígum sem og aðkomuleiðum að biðstöðvum strætó.
Margir íbúar hafa leitað til hverfastöðva Reykjavíkurborgar og náð sér í salt og sand til að bera á einkalóðir og innkeyrslur. Sjá staðsetningu hverfastöðva .
Nánari upplýsingar um snjóhreinsun og hálkueyðingu