Rætt um læsi og birtingarmyndir þess
10.03.2010
Upplestur á frétt 
Fimmtudaginn 4. mars var haldinn mjög skemmtilegur og fróðlegur fræðslufundur um læsi og birtingarmyndir þess. Fjallað var um ólíkar skilgreiningar á því hvað læsi er. Fundinn sátu á milli 60 og 70 manns, flestir frá leikskólum borgarinnar en einnig starfsmenn Borgarbókasafns og annarra stofnana.
Margrét Sigurðardóttir leikskólakennari á Ægisborg sagði frá því hvernig leikið er með læsi í skapandi starfi og hreyfingu í leikskólanum og Halldóra Guðmundsdóttir leikskólakennari á Dvergsteini sagði frá þjóðsöguverkefni sem unnið er á hverju ári með öllum börnunum í leikskólanum. Í verkefninu er tekin fyrir ein saga á tímabilinu janúar til júní og unnið með hana út frá öllum náms- og þroskaþáttunum.
Guðrún Sigursteinsdóttir sérkennsluráðgjafi kynnti Sögugrunninn og Orðahljóð sem eru aðgengileg námsgögn fyrir leikskóla ætluð til að efla málþroska og læsi í leikskólum. Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir menningarráðgjafi hjá ÍTR fjallaði um menningarlæsi og Helena Óladóttir hjá Náttúruskólanum ræddi um mikilvægi þess að efla umhverfislæsi barna. Erindin voru öll einstaklega áhugaverð og áttu fyrirlesarar allir það sameiginlegt að vekja þátttakendur til vitundar um það hversu ríkan þátt málþroski einstaklingsins eflir læsi á fjölbreyttan hátt.