30 ný leikskólapláss í Norðlingaholti
10.08.2010
Upplestur á frétt 
Um miðjan september verður opnuð ný deild við leikskólann Rauðhól að Sandavaði 7 í Norðlingaholti, en brýn þörf er í hverfinu fyrir leikskólapláss fyrir börn sem verða tveggja ára á árinu.
Nýja leikskóladeildin verður í húsnæði sem Norðlingaskóli hefur hingað til haft til afnota, en starfsemi grunnskólans er að færast yfir í nýja skólabyggingu. Við það losna þrjár samliggjandi stofur sem nýttar verða sem leikskóladeild fyrir elstu börnin í Rauðhól. Með nýrri deild verða til 30 ný leikskólapláss í Norðlingaholti, til viðbótar við þau 106 sem fyrir eru í Rauðhól.
Verið er að kanna hvort foreldrar í Norðlingaholti, sem þegar hafa fengið boð um leikskóladvöl í leikskólum í Árbæ, vilji nýta sér þennan nýja valkost í hverfinu. Þá hafa leikskólastjórar í Árbæ og starfsmenn í þjónustumiðstöð hverfisins verið upplýstir um fjölgun leikskólarýma í Norðlingaholti því það mun hafa nokkur áhrif á innritun í alla leikskóla í Árbænum.
Nýr leikskóli er í smíðum í Norðlingaholti og tekur hann til starfa á árinu 2012.