Ánægja með nýtt boltagerði við Borgaskóla
09.11.2011
Upplestur á frétt 
Í morgun var nýtt boltagerði við Borgaskóla í Grafarvogi formlega tekið í notkun. Stelpu- og strákalið öttu kappi á vellinum nýja og Lúðrasveit Grafarvogs lék í tilefni dagsins. Almenn gleði ríkir í hverfinu með nýja sparkvöllinn.
Inga Þórunn Halldórsdóttir, skólastjóri Borgaskóla, segir að mikil ánægja ríki með völlinn. Hann falli vel að umhverfinu og geti nýst með öðrum skólum í hverfinu. Enginn vafi lék á því að nemendur í skólanum taka honum fagnandi og ríkti sannkölluð leikgleði við opnunarathöfnina.. Eva Einardóttir, formaður íþrótta- og tómstundaráðs ávarpaði nemendur og síðan klipptu elsti og yngsti nemandi skólans á borðann.
Boltagerðið er upplýst og stærð þess er 18 x 33 metrar. Verkið, sem var unnið á vegum Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar, var boðið út í júlí og framkvæmdir hófust 20. ágúst. Jarðvegsvinnu önnuðust starfsmenn Íslandsgarða ehf. en vinna við gervigras var á hendi Sport-Tækja ehf. Framkvæmdaeftirlit hafði Verkís.
Sjá upplýsingar um verk á upplýsingasíðu í Framkvæmdasjá
Ljósmyndir í fullri stærð:
Mynd nr. 1 (5,37 Mb) -
Mynd nr. 2 (6,34 Mb)
Mynd nr. 4 (6,11 Mb)