Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Raddir barna - fræðslumorgunn 18. mars

08.03.2010

Upplestur á frétt 

Á fræðslumorgni Leikskólasviðs þann 18. mars kl. 8:30- 11:30 verða kynntar rannsóknir á viðhorfum og hugmyndum ungra barna í daglegu lífi og skólagöngu. Þessar rannsóknir heyra undir verkefnið Raddir barna  sem hófst í janúar 2008 og stendur í þrjú ár. Það miðar að því að þróa aðferðir til að rannsaka skoðanir og sýn barna og þá merkingu sem þau leggja í tilveru sína. Rannsóknirnar eru gerðar hjá RannUng, Rannsóknarstofu í menntunarfræðun ungra barna, með styrk frá Leikskólaráði Reykjavíkurborgar. Á fræðslumorgni verður farið yfir helstu þætti rannsóknarinnar sem er fjórskipt;
Tengsl og samfella í menntun ungra barna,
Börn sem virkir þátttakendur í ákvörðunum í leikskólum,
Margbreytileiki,
Nám og mat.
Sjá dagskrá fundarins

Sjá auglýsingu um fundinn.  

Skráning er hjá Kolbrúnu Vigfúsdóttur