Vinátta barna og blóma
01.09.2010
Upplestur á frétt 
Grasagarðurinn býður elstu börnum leikskólanna í fræðsluheimsóknir í september. Í þeim kynnast börnin því m.a. hvernig hlúa má að blómum svo þau vaxi og dafni. Eins er kannað hvernig blómin endurgjalda umhyggjuna með því að gleðja með fegurð sinni, veita skjól, gefa mat og efni í föt og hús. Barnahópar koma með eigið nesti en boðið verður upp á volgt piparmintute úr garðinum.
Fyrsti heimsóknardagur er 6. september og sá síðasti þann 16. september 2010. Boðið er upp á heimsóknir mánudaga - fimmtudaga kl. 9:30 – 11:00.
Grasagarðurinn vinnur nú að því að þróa námsverkefni fyrir leikskóla sem eiga að verða aðgengileg hópum í framtíðinni. Þessar heimsóknir, sem hér er boðið upp á, eru fyrsta skrefið í undirbúningi þeirra verkefna.
Áhugasamir blómavinir hafi samband við Hildi fyrir föstudaginn 3. september í síma 846-9276.