Reykvískir foreldrar ánægðir með þjónustu leikskólanna
30.05.2011
Upplestur á frétt 
Mikill meirihluti foreldra leikskólabarna í Reykjavík er ánægður með þá þjónustu sem boðið er upp á í leikskólum borgarinnar. Í nýrri viðhorfskönnun meðal foreldra kemur fram að 97% þeirra telja að börnunum þeirra líði mjög vel og séu ánægð í leikskólanum. Foreldrar eru einnig afar ánægðir með samskipti við starfsfólk leikskólanna og telja 95%þau vera góð. Í könnuninni, sem gerð var á vegum tölfræði- og rannsóknarþjónustu Menntasviðs, kom einnig fram að 92% foreldra telja leikskólanum vel stjórnað og er það umtalsvert meiri ánægja en mældist á árinu 2009 þegar síðast var gerð sambærileg könnun.
Viðhorf foreldra til leikskólastarfs í borginni hafa verið könnuð um árabil en slíkar kannanir eru afar mikilvægur mælikvarði á gæði fagstarfsins og þjónustu. Könnunin nú sýnir vaxandi ánægju foreldra með fagstarfið, viðmót starfsfólks, upplýsingamiðlun leikskólans og stjórnun. Heildaránægja með leikskólastarfið er sambærileg og mældist á árinu 2009 en þeim sem eru mjög ánægðir með leikskólann hefur þó fjölgað úr 68% í 72%.
Sjá könnunina í heild sinni.