Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Kristjana Friðbjörnsdóttir fær Barnabókaverðlaun menntaráðs 2011

20.04.2011

Upplestur á frétt 

Kristjana Friðbjörnsdóttir hlaut í dag barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkurborgar fyrir bókina Flateyjarbréfin sem JPV gaf út. Verðlaun fyrir þýðingu komu í hlut Böðvars Guðmundssonar fyrir smásagnasafnið Elskar mig – elskar mig ekki eftir sautján norræna rithöfunda. Mál og menning gaf smásagnarsafnið út með styrk frá Norrænu ráðherranefndinni.

Í umsögn valnefndar um verðlaunabókina Flateyjarbréfin segir m.a.:
Flateyjarbréfin er bók sem kemur skemmtilega á óvart, hún er full af fróðleik og góðum boðskap; Jafnvel þótt maður klúðri hlutunum í hugsunarleysi má alltaf bæta fyrir brot sín. Söguna alla einkennir bæði hressilegur og léttur tónn.

Í umsögn um þýðingu barnabókarinnar Elskar mig – elskar mig ekki segir m.a.:
Í kraftmiklum smásögum fá ungir lesendur innsýn í líf unglinga í átta norrænum löndum. Þýðandinn nær að fanga stíl og sérkenni hvers höfundar á látlausan hátt og er jafnframt óhræddur við að nota slangur og orðfæri sem flestum unglingum er tamt.  

Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs, afhenti  barnabókaverðlaunin síðdegis við hátíðlega athöfn í Höfða að viðstöddum fjölmörgum gestum. Hún sagði m.a. í ávarpi sínu að „góðar barnabækur eru vinir og ferðafélagar allt lífið, enda gömul sannindi og ný að fátt er börnum betri gjöf en góð saga".

Meðal gesta við verðlaunaafhendinguna voru sigurvegarar í Stóru upplestrarkeppninni sem lásu upp úr verðlaunabókunum og ungir hljóðfæraleikarar úr Tónskóla Sigursveins sem léku og sungu.

Barnabókaverðlaun menntaráðs eiga sér langa sögu, en þetta er í 39. sinn að yfirvöld menntamála í Reykjavík verðlauna rithöfunda og þýðendur fyrir afburðagóðar barnabækur. Verðlaunin þjóna þeim tilgangi að vekja athygli á gildi góðra bókmennta í uppeldisstarfi og á metnaðarfullri útgáfu barnabóka. Valnefnd var að þessu sinni skipuð Margréti Kristínu Blöndal formanni, Líf Magneudóttur og Guðrúnu Höllu Sveinsdóttur.

Sjá meira um barnabókaverðlaun menntaráðs

Sjá verðlaunahafa frá upphafi.