Leik- og grunnskóli undir sama þaki í Úlfarsárdal
27.01.2010
Upplestur á frétt 
Menntaráð og leikskólaráð Reykjavíkurborgar hafa samþykkt að nýr skóli í Úlfarsárdal skuli rúma allt skólastarf fyrir börn á aldrinum eins árs til tólf ára; leikskóla, grunnskóla og frístundaheimili. Með þessu fyrirkomulagi verður leitað nýrra leiða til að auka nýbreytni og sveigjanleika í skólastarfi. Jafnframt verður komið í framkvæmd stefnu borgarinnar um heildstæðan skóladag og samfellu í starfsdegi barna.
Nýi skólinn mun taka til starfa haustið 2010. Þá verða í honum börn til og með 5. bekk grunnskóla. Síðan bætist við einn árgangur á hverju ári. Skólinn mun heyra undir Menntasvið Reykjavíkurborgar sem gerir samstarfssamning við Leikskólasvið og Íþrótta- og tómstundasvið. Skólastarf verður í samræmi við bókun 5 í kjarasamningi Kennarasambands Íslands og Launanefndar sveitarfélaga fyrir grunnskóla og lögð áhersla á þverfaglegt samstarf og teymisvinnu.
Í greinargerð með tillögu sem samþykkt var í menntaráði 27. janúar og í leikskólaráði 20. janúar segir að áherslur í skólastarfi í Úlfarsárdal verði listir og lýðheilsa, umhverfismennt, læsi, lesskilningur og bókmenntir. Stefnt er að því að samfella verði í skipulagi og starfsháttum allra árganga og að allir aldurshópar vinni saman.
Fundað var með foreldrum barna í Úlfarsárdal á skrifstofu Menntasviðs þriðjudaginn 26. janúar og þeim kynnt fyrirkomulag skólahalds í hverfinu á hausti komanda.
Sjá fundargerð 114. fundar menntaráðs 27. janúar.