Aukin ánægja meðal foreldra með grunnskóla Reykjavíkur
09.03.2010
Upplestur á frétt 
Niðurstöður viðhorfskönnunar meðal foreldra grunnskólabarna í Reykjavík sýna vaxandi ánægju þeirra með skólann. Mikill meirihluti foreldra í borginni, eða 84 %, er ánægður með skólann sem barnið þeirra er í og er það aukning um sex prósentustig frá árinu 2008 þegar síðast var gerð slík viðhorfskönnun. Um 90% telja að börnum þeirra líði oftast vel í skólanum, hvort heldur er í kennslustundum eða frímínútum.
Ánægja með aðbúnað og aðstöðu í grunnskólum er svipuð milli ára, en eykst þó töluvert þegar spurt er um leikaðstöðu á skólalóð og möguleika barnsins á tómstundaiðkun að loknum skóladegi. Þá eru foreldrar ánægðari nú en fyrir tveimur árum með aðstæður barna sinna til að matast í skólanum svo og með þann mat sem boðið er upp á í mötuneytum skólanna, eða um tæp sjötíu af hundraði. 84% grunnskólabarna í borginni nýta sér daglega heita máltíð í skólanum í hádeginu og telja 90%foreldra verð á skólamáltíðum sanngjarnt.
Viðhorfskannanir hafa verið gerðar sex sinnum frá árinu 2000 meðal foreldra grunnskólabarna í Reykjavík. Þær gefa góðar vísbendingar um kröfur foreldra til innra starfs og aðbúnaðar í skólunum og hvernig koma megi til móts við þær. Kannanirnar leiða m.a. í ljós að hlutfall foreldra sem telur hæfilegar námskröfur gerðar til barna sinna hefur hækkað frá árinu 2000 úr 67% í 81% og að sá hópur foreldra stækkar sem er ánægður með áherslur grunnskólanna á próf, aga og heimavinnu.
Nýjar spurningar voru að þessu sinni lagðar fyrir foreldra um kennslu í fjórum námsgreinum,afstöðu til heimanáms og fleira.Þær leiddu m.a. í ljós að meira en áttatíu af hundraði foreldra eru ánægðir með kennslu í lestri og íslensku, 74% með stærðfræðikennsluna og 70% með kennslu í erlendum tungumálum.11% foreldra eru alfarið á móti heimanámi í grunnskólum, en 84% foreldra vilja heimanám í öllum greinum og er stuðningur þeirra mestur við heimavinnu nemenda á unglingastigi.
Sjá könnun á viðhorfum foreldra barna í grunnskólum Reykjavíkur, mars 2010.