Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Heimsókn Karlasmiðju að Reykjum í Ölfusi

15.06.2010

Upplestur á frétt 

Það var glaðbeittur hópur sem kom í bæinn í vikulokin eftir afar velheppnaða heimsókn í Landbúnaðarháskólann að Reykjum í Ölfusi. Að morgunverði loknum var lagt af  stað með rútu kl. 9 og á leiðinni austur var komið við í Hellisheiðarvirkjun þar sem við fengum góða leiðsögn um svæðið. Rennt var í hlað á Reykjum í blíðskaparveðri þar sem á móti okkur tók einvala lið: Guðríður Helgadóttir forstöðumaður, Guðrún Helga Guðbjarnardóttir brautarstjóri garðyrkjuframleiðslu og Úlfur Óskarsson brautarstjóri skógs og náttúru. Að kynningu lokinni skoðuðum við svæðið og fengum m.a. að smakka ferska tómata, gúrku, chilli og banana. Takk kærlega fyrir okkur og frábæran dag :)  Fyrir fróðleiksfúsa bendum við á slóðina http://www.lbhi.is/skipurit/starfs-ogendurmenntunardeild     http://www.or.is/Hellisheidarvirkjun/   

Hveragerði  Hveragerði
Hveragerði Hveragerði