Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Skáksveit úr Rimaskóla Norðurlandameistari 2010

06.09.2010

Upplestur á frétt 

Íslandsmeistarasveit Rimaskóla í skák náði frábærum árangri á Norðurlandamóti barnaskólasveita sem fram fór í Osló um helgina. Sveitin tefldi við bestu skáksveitir á Norðurlöndum og vann öruggan sigur, tapaði engri viðureign og fékk 15,5 vinning af 20 mögulegum. Danska sveitin fylgdi Rimaskólasveitinni fast eftir og endaði með 14 vinninga en aðrar sveitir stóðu þeirri íslensku og dönsku langt að baki.

Í sveit Rimaskóla eru afar efnilegir skákmenn á aldrinum 11 - 13 ára, ný kynslóð skákmeistara úr skólanum; Dagur Ragnarsson, Jón Trausti Harðarson, Kristinn Andri Kristinsson og bræðurnir Oliver Aron og Kristófer Jóel Jóhannessynir. Þjálfari þeirra er hinn 17 ára gamli Hjörvar Steinn Grétarsson, margfaldur Íslandsmeistari og Norðurlandameistari með Rimaskóla og nýbakaður landsliðsmaður í skák. Fararstjóri liðsins líkt og á fyrri Norðurlandamótum var Helgi Árnason skólastjóri.

Lið Rimaskóla vann Íslandsmeistaratitil barnaskólasveita annað árið í röð í mars sl. og hafa strákarnir í liðinu æft stíft meira og minna síðan. Skáksveitin fékk styrk frá Menntasviði Reykjavíkurborgar til að taka þátt í mótinu og góða aðstoð frá Skákakademíu Reykjavíkur við æfingar.