8. september er alþjóðadagur læsis
07.09.2010
Upplestur á frétt 
Á degi læsis er fólk hvatt til þess að skipuleggja læsisviðburði. Það má gera með því að lesa upp fyrir hvert annað, segja sögur, fara með ljóð eða á annan hátt nota málið til ánægjulegra samskipta. Þannig er þess vænst að fólk á öllum aldri íhugi og meti þau lífsgæði sem felast í því að geta lesið og tjáð sig í rituðu máli.
Sameinuðu þjóðirnar gerðu 8. september að alþjóðadegi læsis árið 1965. Háskólinn á Akureyri, Amtsbókasafnið og Akureyrarstofa hafa verið í samstarfi um að vekja athygli á þessum degi.
Sjá nánar hugmyndahefti um læsisviðburði.
Í tilefni dagsins efnir Háskólinn á Akureyri til ráðstefnu um læsi 10. og 11. september.