Skilmálar Reykjavíkurborgar
1. Reglur þessar eiga við um öll svið, stofnanir og skrifstofur Reykjavíkurborgar.
2. Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðarmál og þær meðhöndlaðar samkvæmt lögum nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
3. Notandi samþykkir að veita Reykjavíkurborg heimild til vinnslu þeirra persónuupplýsinga sem skráðar eru í umsókn svo sem kennitölu, IP tölu o.s.frv.
4. Gögn sem innihalda persónuupplýsingar eru ekki látin þriðja aðila í té nema liggi fyrir skýrt samþykki frá þeim sem persónuupplýsingar varða, þriðji aðili hafi heimild sem byggist á ákvæðum laga eða að fengnum dómsúrskurði.
5. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að miðla umsóknum milli borgarstofnana í sérstökum tilfellum t.d. við úrvinnslu sumarstarfsumsókna.
6. Um sumarstörf hjá Reykjavíkurborg gilda sérstakar reglur, sjá Reglur um sumarstörf.
7. Umsóknaraðili getur hvenær sem er dregið umsókn sína til baka með því að tilkynna það til viðkomandi stofnunar.
8. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að breyta og bæta við skilmála þessa samnings án frekari fyrirvara.
Reykjavík 14. mars, 2008