Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Skipulagsstofnun opnar Skipulagsvefsjá

08.03.2010

Upplestur á frétt 

Skipulagsstofnun hefur opnað svokallaða Skipulagsvefsjá sem er rafrænt gagnasafn skipulagsáætlana sem varðveittar eru hjá stofnuninni. Með tímanum verður hægt að nálgast þar allt deili- og aðalskipulag sem samþykkt og staðfest hefur verið samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 og stofnunin hefur fengið til varðveislu.
Í nokkrum tilfellum er einnig hægt að nálgast skipulagsáætlanir samkvæmt eldri lögum. Nánari leiðbeiningar eru að finna í Skipulagsvefsjánni.

Aðeins er gert ráð fyrir að birta í Skipulagsvefsjánni skipulagsáætlanir sem sannanlega hafa öðlast gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda. Skipulagsstofnun setur þó fyrirvara um að allar skipulagsáætlanir frá tímabilinu 1997 - 2005 og sem nú eru í Skipulagsvefsjánni, hafi öðlast gildi. Unnið er að því að fá upplýst um gildistöku skipulagsáætlana þar sem vafi leikur á um slíkt.

Stefnt er að því lokið verði við að færa allar gildandi skipulagsáætlanir frá 1997 sem nú eru í skipulagssafni stofnunarinnar, inn í Skipulagsvefsjána fyrir árslok 2010. Á meðan eru notendur vinsamlegast beðnir um að sýna biðlund.

Vinsamlegast sendið athugasemdir og ábendingar um það sem betur má fara í Skipulagsvefsjánni á netfangið skipulag@skipulag.is, merkt "Skipulagsvefsjá" í efnislínu.

Slóðin á skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar.

http://www.loftmyndir.is/k/kortasja.asp?client=skipulag