Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Ársskýrsla 2009 komin út

20.08.2010

Upplestur á frétt 

Í nýútkominni ársskýrslu Menntasviðs fyrir árið 2009 eru margvíslegar upplýsingar um skólastarf í borginni, stefnumótun og tölfræði. Greint er frá helstu ákvörðunum menntaráðs á árinu, meginverkefnum sviðsins og fjallað um starfsemi grunnskólanna, tónlistarnám, fullorðinsfræðslu, styrkveitingar og útgáfur.

Kjartan Magnússon sem var formaður menntaráðs á árinu 2009 ritar formálsorð. Í þeim segir m.a. : "Í allri umræðu um þjóðfélagsmál og ,,nýtt Ísland” sem farið hefur fram að undanförnu hef ég saknað þess að hlutur skólamála skuli ekki vera stærri en raun ber vitni. Nauðsynlegt er að víðtækar, hreinskilnislegar og skynsamlegar umræður um skólakerfið í heild sinni og æskilega þróun þess til framtíðar eigi sér stað á næstunni. Ég veit að reykvískt skólafólk mun ekki liggja á liði sínu í þeim umræðum."

Sjá árskýrslu Menntasviðs 2009 (pdf)