Skólasetning í grunnskólum borgarinnar
23.08.2010
Upplestur á frétt 
Í dag, þegar á fjórtánda þúsund barna og unglinga mæta til skólasetningar í grunnskólum Reykjavíkur eftir sumarfrí, fer líf og fjör að færast yfir borgina. Rúmlega fjórtán hundruð börn eru að setjast í fyrsta sinn á skólabekk og mæta með foreldrum sínum í viðtal í skólanum á næstu dögum.
Skólastarf er einnig að hefjast í nýju skólahúsnæði í nokkrum úthverfum borgarinnar. Í nýjum Dalskóla í Úlfarsárdal, sem er samrekinn leikskóli, grunnskóli og frístundaheimili, mætir 31 grunnskólanemi til starfa í dag. Þá verða nýir hlutar af skólabyggingum í Norðlingaskóla og Sæmundarskóla teknir í notkun.
Á þessum skólavetri verður Árbæjarskóli fjölmennasti grunnskólinn í Reykjavík með 690 nemendur, en Dalskóli sá fámennasti með rösklega 30 nemendur.