Frístundastarf færist inn í Vesturbæjarskóla
02.09.2010
Upplestur á frétt 
Í samráði við foreldra barna í Vesturbæjarskóla, skólastjóra og stjórnendur frístundaheimilis hefur verið ákveðið að færa frístundastarf yngstu bekkjardeilda inn í skólann.
Óvænt fjölgun varð í Vesturbæjarskóla í haust og þurfti með einhverjum ráðum að leysa tímabundna húsnæðiseklu frístundaheimilisins. Færanlegum kennslustofum var komið fyrir á skólalóðinni í síðustu viku með það fyrir augum að leysa vandann.
Þegar ljóst var hversu mikið af leiksvæði barnanna fór undir bráðabirgðarhúsnæðið lögðust skólastjórnendur, kennarar og stjórnendur frístundastarfs á eitt um að finna betri lausn fyrir nemendur á þessu skólaári.
Frístundastarf yngstu bekkjardeildanna verður nú flutt inn í skólann og færanlegu kennslustofurnar verða fluttar af skólalóðinni á næstu dögum. Börnin munu því endurheimta leiksvæði sitt á skólalóðinni.
Jón Gnarr borgarstjóri segir það fagnaðarefni að náðst hafi farsæl lausn á málinu. „Það sem mestu máli skiptir er að hagsmunir barnanna séu hafðir að leiðarljósi. Þeirra þarfir eiga ávallt að vera í fyrirrúmi hvort sem það er í starfi eða leik".