Menningarfræðsla fyrir leikskólabörn
03.09.2010
Upplestur á frétt 
Fimmtudaginn 9. september verður fræðslufundur í salnum á Fríkirkjuvegi 1 um samstarf leikskóla og menningarstofnana í borginni. Þar munu fulltrúar safna og menningarstofnana kynna fræðslustarfsemi fyrir yngstu borgarbúana. Einnig segir Fríða Bjarney Jónsdóttir verkefnastjóri á Leikskólaskrifstofu frá vefnum List og menning í leikskólastarfi.
Dagskrá
Signý Pálsdóttir, skrifstofustjóri menningarmála, setur fundinn.
Fríða Bjarney Jónsdóttir, verkefnastjóri á Leikskólaskrifstofu, segir frá starfi tengiliðar vegna samstarfs leikskóla við listaskóla og menningarstofnanir og vefsíðunni List og Menning í leikskólastarfi.
Fulltrúar stofnana á Menningar- og ferðamálasviði kynna starfsemi þeirra með tilliti til leikskólanna.
- Listasafn Reykjavíkur: Alma Dís Kristinsdóttir
- Borgarbókasafn Reykjavíkur: Þorbjörg Karlsdóttir og Kristín R. Vilhjálmsdóttir
- Minjasafn Reykjavíkur: Sigurborg Hilmarsdóttir og Guðbrandur Benediktsson
- Menningarmiðstöðin Gerðuberg: Margrét Valdimarsdóttir og Guðrún Dís Jónatansdóttir
- Höfuðborgarstofa: Skúli Gautason
- Viðey: Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir
- Ljósmyndasafn Reykjavíkur: Jóhanna Guðrún Árnadóttir og María Karen Sigurðardóttir.
Fyrirspurnir og umræður
Sjá auglýsingu um fundinn.