Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Dagskrá Rauðakrosshússins

01.02.2010

Sálrænn stuðningur verður í dag, mánudag, þar sem fjallað er um áhrif áfalla á andlega líðan fólks. Enskuhópurinn heldur áfram og sömuleiðis skákklúbburinn.

Á þriðjudaginn verður sögð reynslusaga konu sem varð móðir þegar hún var enn í 10. bekk, en sonur hennar er nú sjálfur í efsta bekk grunnskóla. Hún talar um áfallið, fordómana, stuðninginn og árangurinn. Fyrirlestur sem kemur skemmtilega á óvart.

Lilja frá Art of living kennir síðan gestum að anda rétt, íhuga og lifa meira í núinu í stað þess að velta sér upp úr gærdeginum.

Á miðvikudaginn verður fyrsti fyrirlesturinn af þremur um ræktun fyrir sumarið og í þetta sinn verður sjónum okkar beint að sumarblómunum.

Á fimmtudaginn hefst námskeið fyrir byrjendur í fluguhnýtingum og nauðsynlegt að skrá sig á það, en þetta er fyrsti hluti af fjórum.

Vikunni lýkur síðan með trommuhring þar sem allir geta lært bumbuslátt og búið til rythma saman. Ef þú átt trommu (bongo-, Congas- eða djembe-) endilega kipptu henni með!

Sjálfboðaliðar Rauða krossins veita stuðning og jafningjaráðgjöf á opnunartíma Rauðakrosshússins og

prestar/djáknar eru með viðveru mánudaga til föstudaga milli klukkan 14 og 16.