Dagskrá Rauðakrosshússins
01.03.2010
Upplestur á frétt 
Í dag, mánudag, verður kennd myndvinnsla með Picasa myndvinnsluforritinu og þá er gott að taka með
sér eigin tölvu og myndavél (ásamt snúru) ef kostur er á. Á þriðjudag kemur Ingrid frá Þekkingarmiðlun
og fjallar um hvernig þeir færustu í samskiptum bera sig að. Stórskemmtilegur fyrirlestur fyrir alla.
Miðvikudagurinn hefst á umræðutíma um líðan atvinnuleitenda og hvernig hún er eftir langa leit að vinnu, hvað
hægt er að gera til að láta sem flestum líða betur. Félagsvinir atvinnuleitenda stjórna og taka þátt í umræðum.
Árelía Eydís dósent í viðskiptafræðideild kemur einnig á miðvikudag og talar um líf án hindrana og mikilvægi þess að skoða
þær vel áður en maður samþykkir þær inn í líf sitt.
Á fimmtudaginn verður ýmis hópastarfsemi ásamt sívinsælu jóga.
Föstudagurinn er merkisdagur í Rauðakrosshúsinu sem verður eins árs þann dag og vitanlega gerum við okkur dagamun
með uppistandi og tónlist og ljúffengri afmælistertu. Það eru að sjálfsögðu allir velkomnir eins og ávallt í Rauðakrosshúsinu.
Sjálfboðaliðar Rauða krossins veita jafningjaráðgjöf og stuðning á opnunartíma og prestar/djáknar hafa fasta viðveru í
Rauðakrosshúsinu virka daga milli klukkan 14 og 16.