Þorrasel 10. ára - Opið hús 13. mars
10.03.2010
Upplestur á frétt 
Þorrasel, dagdeild aldraðra 10 ára
Í dag 10. mars heldur Þorrasel, dagdeild aldraðra upp á 10. ára afmæli. Í tilefni af afmælinu verður opið hús laugardaginn 13. mars. Reykvíkingum verður þá boðið að kynna sér starfsemina. Kaffi og vöfflur verða á góðu verði og handverkssala dagdeildarinnar. Opið verður á milli 13:00 og 15:00. Allir velkomnir!
Dagdeildin var áður staðsett á Dalbraut en var flutt á Þorragötu 3 árið 2000.
Dagleg starfssemi í Þorraseli dagdeild aldraða felst m.a. í samverustundum, starfi í vinnustofu, léttum leikfimisæfingum og stuttum gönguæfingum. Markmið deildarinnar er m.a. að viðhalda og auka hreyfigetu hvers og eins, rjúfa félagslega einangrun og stuðla að því að einstaklingurinn haldi sjálfstæði sínu og geti búið sem lengst heima.
Dagdeildin er opin alla virka daga frá kl. 8:00 - 16:00. Hægt er að taka á móti 40 einstaklingum á dag. Akstur er til og frá dagdeild.
Starfsmenn Þorrasels eru 10 með mikla reynslu og ólíkan bakgrunn.