Stofnun Íbúasamtakanna 111 Reykjavík
02.09.2010
Upplestur á frétt 
Í sumar voru Íbúasamtökin 111 Reykjavík stofnuð og er Ragnhildur Björg Guðjónsdóttir, formaður samtakanna. Aðrir í stjórn eru þau Sævar Þór Geirsson, Elísabet Ólöf Helgadóttir, Dagbjört S. Snæbjörtsdóttir og Hreinn Ágústsson. Tilgangur samtakanna er að efla samhug og samkennd íbúa. Jafnframt að vera samstarfsvettvangur íbúa, félagasamtaka og hagsmunasamtaka á svæðinu sem og að vinna að hagsmunamálum í hverfinu. Einnig að standa vörð um sérkenni hverfisins og standa með hverfisráði Breiðholts og öðrum opinberum aðilum sem fara með málefni hverfisins, íbúa þess og við íbúasamtök annarra hverfa. Íbúasamtökin 111 Reykjavík eru önnur formlegu íbúasamtökin sem eru stofnuð í Breiðholti en fyrir eru Íbúasamtökin Betra Breiðholt.