Fréttir
Betri Reykjavík var valinn frumlegasti vefurinn og athyglisverðasti vefurinn á Íslensku vefverðlaununum sem Samtök vefiðnaðarins, SVEF, standa að. Verðlaunin eru uppskeruhátíð með það að markmiði að verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða.
Dagbjartur Sigurbrandsson hefur stýrt umferðarljósunum í Reykjavík i 41 ár og á þeim tíma hafa orðið gríðarlegar breytingar á umferðinni og tækninni sem er á bak við umferðarljós og stýringu þeirra. Á næstunni lætur Dagbjartur af störfum eftir farsælan og ánægjulegan tíma og af því tilefni var honum haldið kveðjuhóf af starfsmönnum á Framkvæmda- og eignasviði. Hópur lögreglumanna sem átt hefur mikil samskipti við Dagbjart mætti einnig til að kveðja góðan félaga og þakka fyrir samstarfið.
Reykjavíkurborg óskar eftir því að alþingi breyti lögum um álagningu fasteignaskatta á hesthús þannig að ekki þurfi að stórhækka álagningu á þá sem eiga hesthús þar sem fram fer frístundastarf.
Námskeið í tölvufærni aldraðra sem Reykjavíkurborg hefur staðið fyrir eru hafin að nýju. Námskeiðin sem haldin eru í 6 félagsmiðstöðvum eru ókeypis hafa reynst mjög vinsæl, aðsókn hefur verið góð og mikill áhugi. Nú bætast námskeið við á þremur nýjum stöðum.