Tengdar fréttir
17.12.2010
Svifryk yfir mörkum í Reykjavík
Styrkur svifryks fór yfir heilsuverndarmörk í gær í 27. sinn á árinu. Líklegt er að hann verði einnig yfir heilsuverndarmörkum í dag, 17. desember.
Klukkan 13.30 voru hálftímagildin 361 míkrógramm á rúmmetra í mælistöð við Grensásveg. Meðaltal frá miðnætti er 149 míkrógrömm. Heilsuverndarmörk á sólarhring eru 50 míkrógrömm. Vindur þyrlar upp ryki í borginni og er búist við að vindstyrkurinn aukist í dag. Ef það snjóar í kvöld (17. des) ætti að draga úr loftmengun.
Líkur eru á að styrkur svifryks verði áfram hár á morgun, 18. desember. Hægt er að fylgjast með styrknum á vefmæli á reykjavik.is
Tengill
Loftgæði í Reykjavík