Tengdar fréttir
04.01.2011
Svifryk yfir heilsuverndarmörkum 4. janúar
Styrkur svifryks (PM10) mun mælast yfir heilsuverndarmörkum í Reykjavík í dag, 4. janúar. Líkur eru á svifryksmengun næstu daga. Hálftímagildi svifryks klukkan 11 mældist tæplega 500 míkrógrömm á rúmmetra við Grensásveg og meðaltalið frá miðnætti var 231. Heilsuverndarmörk á sólarhring eru 50 míkrógrömm.
Hálftímagildið klukkan 10 í farstöð Umhverfis- og samgöngusviðsvið Tunguveg í Bústaðahverfi mældist 143 míkrógrömm á rúmmetra og meðaltalið frá miðnætti var 103.
Norðanstæður vindur er á Faxaflóasvæðinu, þurrviðri og lágt rakastig. Töluverður vindur ásamt bílaumferð þyrlar nú upp ryki í borginni og veldur svifryksmengun. Þeir sem eru með viðkvæm öndunarfæri ættu taka tillit til aðstæðna og fylgjast með loftgæðum á vefmæli borgarinnar sem sýnir svifryksmengun við Grensásveg en þar mælist jafnan mesta mengunin.
Tengill
Vefmælir