Tengdar fréttir
13.01.2011
Svifryk fimm sinnum yfir mörkum
Styrkur svifryks verður sennilega yfir heilsuverndarmörkum í dag, 13. janúar, og yrði það í sjötta skiptið á þessu ári. Ástæða svifryksmengunar þennan hálfa mánuð sem liðinn er af nýju ári er fjölþætt meðal annars vegna ryks úr umhverfi, bílaumferðar og uppþyrlunar ryks af götum.
Aðalmælistöðin er við Grensásveg og farstöð Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur er nú við Tunguveg en báðar hafa þær sýnt styrk svifryks fimm sinnum yfir heilsuverndarmörkum á þessu ári. Á bilinu 12.00 til 12.30 í dag, 13. janúar, var styrkur svifryks við Grensásveg 456 míkrógrömm á rúmmetra og 623 við Tunguveg. Heilsuverndarmörk á sólarhring eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.
Raki er lítill i loft og skapar það skilyrði til svifryksmengunar, þá hefur verið þurrt í veðri og vindur töluverður. Veðurspá bendir til einhverrar úrkomu á höfuðborgarsvæðinu í dag en þeir sem eru með viðkvæm öndunarfæri ættu taka tillit til aðstæðna og fylgjast með loftgæðum á vefmæli borgarinnar sem sýnir svifryksmengun við Grensásveg.
Tengill
Vefmælir Reykjavíkurborgar