Tengdar fréttir
18.03.2011
Nagladekkjum fækkað um helming á 9 árum
Nagladekkjum hefur fækkað um helming á 9 árum í Reykjavík. Í marsmánuði 2002 voru 67% bifreiða á nagladekkjum en á sama tíma árið 2011 eru 34% á nöglum. „Nagladekk eru á hröðu undanhaldi í borginni, þetta er mjög ánægjuleg þróun” segir Eygerður Margrétardóttir framkvæmdastýra Staðardagskrár 21.
Hlutfall bifreiða á negldum dekkjum í Reykjavík lækkar árlega. 34% ökutækja reyndust á negldum dekkjum og 66% á ónegldum þegar talið var í vikunni. Á sama tíma árið 2008, eða í 11 viku árs, voru 44% bifreiða á negldum, 42% árið 2009 og 39% í fyrra.
Fjölmargt hefur hjálpað til við að fækka nagladekkjum í borginni. Reykjavíkurborg hefur hvatt íbúa til að velja önnur dekk á borgarbílinn því hægt er að komast örugglega um borgina með öðru móti. Gatnaþjónustan er góð, vetur mildur, önnur vetrardekk betri kostur og flestir vilja leggja sitt af mörkum til að draga úr svifryki og hávaðamengun.
Tenglar
Samantekt yfir talningar á hlutfalli nagladekkja í Reykjavík í 10 ár
Vetrarþjónusta í Reykjavík