Skjaldarmerki Reykjavíkur
Þann 10. ágúst 2004 samþykkti Borgarráð Reykjavíkur nýjar reglur um notkun á merki Reykjavíkurborgar. Þar segir m.a.:
Skjaldarmerki Reykjavíkurborgar er tvær öndvegissúlur og þrjár öldulínur á gotneskum skildi. Litur merkisins er blár en öndvegissúlur og öldur eru hvítar. Nota má svartan lit í stað þess bláa. Sé merkið prentað á dökkan grunn er heimilt að draga hvíta línu í kringum það.
Með skjaldarmerki borgarinnar er notuð leturgerðin Berthold Akzidens Grotesk. Skjaldarmerkið skal annað hvort staðsett fyrir framan texta eða miðjað með texta. Heitið Reykjavíkurborg er notað í yfirtitli og heiti viðkomandi embættis, deildar eða stofnunar þar undir.
Hönnunarstaðall og reglur um notkun
Hönnunarstaðall (pdf skjal 8,71 MB).
Reglur um notkun á merki Reykjavíkurborgar (pdf skjal 144 KB).
Merkið á tölvutæku formi
Merkið í pdf formi (gegnsætt)
Merki-skjöldur vinstra megin og texti hægra megin.
Merkið á jpeg formi
Merki - miðjað með skildi fyrir ofan.
Merki - skjöldur vinstra megin og texti hægra megin.
Merkið á vektora formi (EPS)
Skjöldur án texta.
Skjöldur með texta hægra megin.
Skjöldur með texta í miðju.
Skjöldur - kynningarútgáfa ferhyrningur.
Fyrirspurnir vegna skjaldamerkis berist til Huldu Gunnarsdóttur upplýsingafulltrúa á netfangið hulda.gunnars@reykjavik.is.
Fyrirspurnir og/eða ábendingar