Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

.

Fréttir

03.01.2012

Greiningar á fjárhagslegu umhverfi Upplýsingatæknimiðstöðvar Reykjavíkurborgar

Innri endurskoðun hefur lagt fyrir borgarráð niðurstöður greiningar á fjárhagslegu umhverfi Upplýsingatæknimiðstöðvar Reykjavíkurborgar og gjaldskrá fyrir leigu á búnaði þar sem m.a. er farið yfir helstu forsendur og samanburð við gjaldskrár annarra upplýsingatæknideilda. Meðal helstu niðurstaðna er að móta þarf heildarstefnu varðandi upplýsingatæknimál Reykjavíkurborgar og samræma meðhöndlun fjárveitinga til upplýsingatæknimála á þann hátt að notendur greiði allir eftir samræmdri gjaldskrá. Þá þarf að greina þörf fyrir endurnýjun búnaðar og gera fjárfestingaráætlun til næstu ára sem tekur mið af stefnu borgarstjórnar.

Afgreiðsla borgarráðs fólst í því að fela stýrihópi að vinna úr ábendingum Innri endurskoðunar.

Skýrsluna er að finna undir útgefið efni 2011


.
Innri endurskoðun

Ráðhúsi Reykjavíkur
101 Reykjavík

Sími: 411 4600
Fax: 411 4699


Ábendingar um misferli
Ábendingar um misferli

 

Póstlisti

Með því að skrá netfang þitt í reitinn hér fyrir neðan gerist þú áskrifandi að fréttum Innri endurskoðunar.

Senda >>