menntasvid_banner     Mynd eftir nemanda úr Fellaskóla     

Grunnskólar

Stúlka í IngunnarskólaGrunnskólar Reykjavíkur og aðrir skólar sem eru reknir fyrir fé úr borgarsjóði eru þjónustustofnanir við borgarbúa. Lög, reglugerðir og aðalnámskrá grunnskóla marka rammann um starfið svo og stefna og ákvarðanir borgaryfirvalda í menntamálum. Innan þessa ramma hafa skólarnir frjálsar hendur um skipulag og framkvæmd skólastarfs. Hlutverk borgarinnar er að marka stefnu, hafa eftirlit með starfinu og ráðstöfun fjármagns sem borgin leggur til. Hlutverk menntaráðs og Menntasviðs að styðja og hvetja skóla til að bæta stöðugt starf sitt.

Leiðarljós grunnskóla
Að grunnskólar borgarinnar séu í hópi bestu skóla innan lands og utan. 
Sett hafa verið viðmið sem skólar geta haft til samanburðar:

  • Að faglegur metnaður móti allt skólastarf og þá þjónustu sem borgin veitir skólunum.
  • Að grunnskólinn sé lifandi miðstöð í hverfinu og í virkum tengslum við umhverfi sitt - náttúru, atvinnulíf og menningu í borginni.
  • Að vægi skólastarfs í borgarlífinu aukist og stuðlað sé að jákvæðum viðhorfum til grunnskólans, meðal annars með útgáfu kynningarefnis og tengslum skóla við nánasta umhverfi sitt.
  • Að allir nemendur njóti alhliða menntunar við hæfi hvers og eins og fái hvatningu til náms í samræmi við þroska sinn og áhuga, samanber áherslur í grunnskólalögum.
  • Að vinnudagur nemenda í skólunum skiptist með ákveðnum hætti í bóklegt nám, verklega þjálfun, iðkun lista og tómstundastarf. Nemendur eigi kost á máltíð í skólanum.
  • Að grunnskólanámið sé grunnur að símenntun allra nemenda allt lífið.

Sjá kort yfir alla grunnskóla í Reykjavík.  
 



Menntasvið og Leikskólasvið
Reykjavíkurborgar
Fríkirkjuvegi 1
Sími: 411 7000
menntasvid@reykjavik.is
Upplýsingar um sviðin

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is