Verðlaun
Menntasvið Reykjavíkur veitir árlega nokkur verðlaun til grunnskólanemenda og skóla og er það liður í því að vekja athygli á því sem vel er gert í skólastarfi, stuðla að framþróun og hvetja nemendur og kennara til dáða. Einnig veitir menntaráð íslenskuverðlaun og umgengnisverðlaun og jafnframt eru rithöfundar og þýðendur verðlaunaðir fyrir barnabókmenntir.