Mynd- og tungumálaver grunnskólanna
Myndver
Í Hvassaleitisskóla er starfrækt myndver grunnskóla í Reykjavík. Þangað geta nemendur og kennarar í grunnskólum Reykjavíkur leitað vegna verkefna og þáttagerðar á sviði ljósmyndunar og kvikmynda. Á hverju skólaári nýta á annað þúsund nemendur og kennarar þessa aðstöðu.
Þeir sem hafa áhuga á að heimsækja myndverið og nota aðstöðuna þar geta haft samband við umsjónarmann Martein Sigurgeirsson
Tungumálaver
Í Laugalækjarskóla er starfrækt tungumálaver grunnskóla. Þar er veitt ráðgjöf um tungumálakennslu, haldið utan um fjarkennslu og þróaðar nýjar kennsluaðferðir. Starfsmenn tungumálavers eru: Brynhildur Anna Ragnarsdóttir deildarstjóri, Gry Ek Gunnarsson kennsluráðgjafi í norsku og Erika Frodell kennsluráðgjafi í sænsku. Síminn í tungumálaveri er 588 7500