Spurt og svarað
Hverjir geta sótt um sumarstörf hjá Reykjavíkurborg?
Svar: Þeir sem eru 17 ára og eldri (fæddir 1991 eða fyrr) og eru með lögheimili í Reykjavík geta sótt um sumarstörf hjá Reykjavíkurborg.
Undantekningar varðandi lögheimili eru gerðar á þegar sótt er um leiðbeinendastörf hjá Vinnuskóla Reykjavíkur og Leikskólum borgarinnar.
Get ég reiknað með að fá vinnu hjá Reykjavíkurborg?
Svar: Það er ekki hægt að reikna með því að fá öruggt starf hjá borginni? Við hvetjum þig til að vera dugleg/ur að sækja einnig um á öðrum stöðum.
Hvenær fæ ég svar við umsókn minni vegna sumarstarfa?
Svar: Það er mjög misjafnt eftir stofnunum hvenær svör berast. Í sumum tilfellum berast svör ekki fyrr en í byrjun júnímánuðar.