Breiðholt
stemming við tjörnina
Breiðholtskirkja
fallegur dalur

Hverfaráð

Hverfisráð í Reykjavík starfa í umboði borgarráðs.  Verksvið hverfisráða er að stuðla að hvers konar samstarfi innan hverfis, móta stefnu og gera tillögur til borgarráðs sem varða verksvið þeirra.  Þá geta hverfisráð gert tillögur um samræmingu á þjónustu borgarstofnana í einstökum hverfum. Hverfisráð er vettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda og eru virkir þátttakendur í allri stefnumörkun hverfanna.  Þannig eru hverfisráðin ráðgefandi fyrir starfsemi þjónustumiðstöðva í hverfum.  Þá stuðla hverfisráð að kynningu skipulags, framkvæmda og þjónustu borgarstofnana í hverfum og beita sér fyrir því að samráð verði haft við íbúa allt eftir eðli máls hverju sinni. Hverfisráð eru skipuð 7 fulltrúum kosnum af borgarstjórn og jafn mörgum til vara.  Borgarstjórn kýs formann úr hópi kjörinna nefndarmanna.  Kjörtímabil hverfisráða er hið sama og borgarstjórnar. Hverfisráð Breiðholts heldur mánaðarlega fundi í húsnæði Þjónustumiðstöðvar Breiðholts í Álfabakka 12.  Hverfisráðið heldur gerðarbók og fundargerðir má lesa á vef Reykjavíkurborgar. Hverfisráð skulu haldna opna fundi með íbúum einu sinni á ári hið minnsta.

Brynjar Fransson er formaður hverfisráðs Breiðholts og er fulltrúi B-listans.

Aðrir í ráðinu er eftirtaldir:

Ragnhildur Björg Guðjónsdóttir er varaformaður ráðsins og fulltrúi D-listans.

Hafsteinn Valsson er fulltrúi D-listans.

Þorkell Ragnarsson er fulltrúi D-listans.

Stefán Jóhann Stefánsson er fulltrúi S-listans.

Falasteen Abu Libedeh er fulltrúi S-listans.

Salmann Tamimi er fulltrúi V-listans.

Áheyrnafulltrúi er Sigurður Þórðarson frá F-lista.

Varamenn eru eftirtaldir:

Edda Borg Ólafsdóttir fyrir D-lista.

Albert Guðbrandsson fyrir D-lista.

Elísabet Ólöf Helgadóttir fyrir D-lista.

Linda Birna Sigurðardóttir fyrir B-lista.

Guðlaugur Kr. Jörundsson fyrir S-lista.

Guðfinnur Sveinsson fyrir S-lista.

Sóley Tómasdóttir fyrir V-lista.

Varaáheyrnafulltrúi er Hallgrímur Egilsson fyrir F-lista.

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is