menntasvid_banner     Mynd eftir nemanda úr Fellaskóla     

Námsflokkarnir

Nemendur og kennarar við störf hjá Námsflokkum Reykjavíkur.

Námsflokkar Reykjavíkur sinna fullorðinsfræðslu og framfylgja félagslegri menntastefnu Reykjavíkurborgar. Hlutverk Námsflokkanna er að hvetja fólk til að auka við menntun sína og hjálpa því að finna námsleiðir við hæfi.

Námskeið og önnur úrræði á vegum Námsflokkanna eru búin til og þróuð í samvinnu við aðra sem starfa á sviði menntunar og félagsþjónustu. Fræðslufyrirtæki og skólar sjá um framkvæmd námskeiða. Í samvinnu við fræðslufyrirtæki og framhaldsskóla þróa Námsflokkarnir einnig úrræði og veita fullorðnu fólki með sértæka námsörðugleika námsaðstoð. Námsráðgjafar á vegum Námsflokkanna starfa á þjónustumiðstöðvum borgarinnar og ráðgjöf þeirra stendur öllum borgarbúum til boða.

Sjá heimasíðu Námsflokka Reykjavíkur

 

 



Menntasvið og Leikskólasvið
Reykjavíkurborgar
Fríkirkjuvegi 1
Sími: 411 7000
menntasvid@reykjavik.is
Upplýsingar um sviðin

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is