Fréttir
Nú stendur yfir sýning í Félagsmiðstöðinni Aflagranda 40 á myndum Þórhildar Jónsdóttur af persónum úr Njálssögu. Myndirnar vann hún í samstarfi við Bjarna E. Sigurðsson sem lýsti persónunum fyrir henni í gegnum síma. Sýningin mun standa út febrúar og eru allir velkomnir að koma og skoða. Fyrstu þrjá mánudagana í febrúar mun Bjarni síðan flytja þrjú erindi um Njálu. Þann 6. febrúar fjallar hann um ástir í Njálu, þann 13. febrúar um Brennuflosa og þann 20. febrúar um Hallgerði Langbrók.
Þrettándahátíð Vesturbæjar verður sem fyrri ár haldin föstudaginn 6. janúar með pompi og prakt. Venju samkvæmt verður safnast saman við Frostaskjól, á svæði KR, Frístundamiðstöðvarinnar Frostaskjóls og Do Re Mí klukkan 18:00. Barna- og stúlknakór Neskirkju taka á móti gestum með ljúfum söng og KR flugeldar verða með kyndla til sölu. Formaður hverfisráðs Vesturbæjar mun svo senda skrúðgöngu af stað ...smelltu á fyrirsögn til að sjá alla fréttina.
Reykjavíkurborg óskar nú eftir hugmyndum á vefnum Betri Reykjavík til eflingar og fegrunar í hverfum Reykjavíkur. Sett hefur verið upp undirsíða á Betri Reykjavík sem nefnist Betri hverfi. Þar geta íbúar sett inn hugmyndir að smærri nýframkvæmdum og viðhaldsverkefnum í hverfunum og stutt hugmyndir annarra eða hafnað þeim.
Skoða allar fréttir