Umsókn um styrki úr borgarsjóði
Reykjavíkurborg veitir ár hvert félagasamtökum, fyrirtækjum og einstaklingum styrki til starfsemi og þjónustu sem fellur að hlutverki sveitarfélagsins eða telst á annan hátt í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun borgaryfirvalda.
Styrkirnir eru ætlaðir viðburðum eða verkefnum sem koma til framkvæmda á næsta ári.
Viðburðir eða verkefni eru ekki styrkt eftir á. Styrkveiting felur ekki í sér fyrirheit um frekari skuldbindingar af hálfu Reykjavíkurborgar nema gerður sé sérstakur samningur þess efnis.
Auglýsing um styrkumsóknir fyrir árið 2012.
UMSÓKNARFRESTUR FYRIR ÁRIÐ 2012 ER LIÐINN. ÁÆTLAÐ ER AÐ AFGREIÐSLU UMSÓKNA VERÐI LOKIÐ Í ÁRSBYRJUN 2012. ÖLLUM UMSÆKJENDUM VERÐUR SVARAÐ.
Umsókn skal berast eigi síðar en 5. október 2011. Einungis eru teknar til greina umsóknir sem berast innan tilskilins frests og uppfylla þær kröfur sem reglur Reykjavíkurborgar kveða á um. Þeir aðilar sem fengi hafa styrk áður þurfa að skila inn greinargerð um ráðstöfnun þess fjár.
Fyrirspurnir má senda á netfangið styrkir@reykjavik.is
Reglur um styrki
Áherslur einstakra ráða og nefnda
Greinargerð (eyðublað til útprentunar)
Greinargerð um styrki Menningar- og ferðamálsviðs